Kjapparnir...

Mökkölvaðir, útúr stíleraðir og hell tannaðir á því...

21.03.2007 18:29:21 / ismellingar

shitt.... fyrsta skipti i New York...

Shitt það ætlar ekki af mer að ganga... loksins farið í langþráð frí til miami og ekki byrjaði þessi dagur vel..... mætti í vinnuna og var að til hálf 12 .. svo var farið heim, pakkað niður, sturtað sig og græjað..... vélin átti að fara í loftið kl 17.... svo að strákurinnn hafði sko nægan tíma til að kíkja í smáralindina og versla sér bakpoka og svoleiðis.... fór inní útilíf fann töskuna, borgaði , og fór svo að pikka littlu sys upp í Versló um hálf 15 ..... svo var brunað af stað til Keflavíkur... á miðri reykjanesbrautinni þá bað ég han um að kíkja nú á passann minn .. fékk eitthvað svona hugskeyti.. og viti menn... tók gamla passann minn sem rann út 93....

svo þá var aftur brunað heim og náð í hinn... svo tjékkaði maður sig bara inn og fékk sér einn tvo öllara.... og svo tölt í átt að vélinni..... þá var seinkunn og komu flugmennirnir manna síðastir inn... fórum í loftið kl korter í 18 og þá var byrjað að reyna að semja við flugfreyjurnar um að fá sæti framar í vélinni fyrir lendinguna þar sem tíminn var naumur þar til næsta flug frá New York færi í loftið 2 og hálfum tíma síðar...... ok það gekk eftir ....

enn JESÚS PÉTUR HEILÖG MARÍA OG JÓSEP..... ÞAÐ Á AÐ BANNA FEITU FÓLKI AÐ SITJA VIÐ HLIÐINA Á VENJULEGU FÓLKI..... ÞAÐ SETTIST VIÐ HLIÐINA Á MÉR ÁSTRALI SEM VAR AÐ DEYJA ÚR OFÁTI...... ÉG BARA SÁTTUR Á KANNTINUM MEÐ BÁÐA OLNBOGANA Á UNITINU ÞARNA Á MILLI SÆTANNA.... SVO KOM HANN OG ÞURFTI 2 TILRAUNIR TIL AÐ TROÐA SÉR Í SÆTIÐ .... OG OLNBOGINN VARÐ AÐ FJÚKA ÞAR SEM HLIÐARSPIKIIÐ NÁÐI YFIR Á SÆTIÐ MITT..... var ekki sáttur..... svo kom maturinn.. og það var fiskur ..... ok ég er mjög mikið fyrir fisk ... enn shit hversu massift er hægt að klúðra nokkrum fiskbitum.... og hrásalatið var eins og snýt útúr kameldýri... enn kakan var góð... svo var pantað sér kaffi í eftirrétt .. og viti menn haldiði ekki bara að stráknum hafi förlast flugið og hellt úr kaffibollanum yfir klofið á ástralanum og lærið á mér..... hann var sofandi svo ég var ekkert að tjá mig um þetta.... svo var ég færður um sæti..... þar voru gömul hjón frá Bristol í U.K.     konan var í því að taka myndir útum gluggann og furðaði sig alltaf jafn mikið á því hvað þær voru óskýrar...HÚN VAR MEÐ FLASSIÐ Á HELVÍTIS VÉLINNI OG VONLAUST AÐ SJÁ NOKKUÐ Á MYNDUNUM.... svo var lent og tilkynnti flugmaðurinn það að verið væri svo slæmt á JFK að vélar væru fastar um alla flugbraut.... svo að við yrðum að hinkra á meðan Placið væri tæmt.... það tók 40 min... og orðið 38 stiga hiti í vélinni...

Ég sá það þá að ég væri búinn að missa af næstu vél.... svo að það var farið að hringja á fullu að reyna að plögga flugi .... beið í hálftíma í röð í tollinum .. og tollarinn hló af myndinni af mér í passanum mínum... svo var náð í töskurnar og gengið út.....OG ÞAR VAR SNÓ BYLUR.... og svertingar á öllum götuhornum með skóflur.... núna er kl 24 NEW YORK time..... og ferðalagið aðeins búið að taka 10 tíma.... kom inn í næstu flugstöð og litið á skjáina... CANCELLED á öllum skjám.... frétti það svo að það hefði verið frestað 8000 vélum til og frá NEW YORK í dag..... klukkan er 4 á íslenskum tíma ég á pantað flug kl 6:15 í fyrramálið eftir 6 tíma semsagt... ef það verður flogið..... er inn í þessari risa stóru ísköldu byggingu .... enn reyndar fékk ég bedda, kodda og teppi ásamt hinum 4000 sem bíða hér eftir fluginu sínu..... svo maka þeir ofan í  mann bláu snakki og gosi........ jæja farinn að sofa.. 32 stiga hiti í fyrramálið bíður mín ef allt rætist...Later Stebbi Agnar...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 00:48:53 / ismellingar

Jebbs... 23 dagar síðan síðast...

Hehe ok ... núna eru 23 dagar síðan einhver af okkur krotaði síðast... en allir höfum við verið að drukkna í einkalífinu... sumir eru á kafi í skólanum .. sumir giftu sig.... sumir sprengdu 2 dekk á bílnum sínum í sömu vikunni.... sumir útskrifuðust.. sumir áttu afmæli og margt margt annað gerðist.......

  Það sem gerst hefur síðan síðast ...

Við félagarnir Mattison, Valdi Kaldi, Johnny og Stebbi skelltum okkur á dögunum á Fridays og duttum í’ða, og héldum síðan áfram hjá Valda og svo í afmæli hjá henni Hildi okkar og fékk hún eitt vatnsheldan dildó í ammælispakka og hefur verið gröð, meina glöð síðan.....

 

Við Valdi höfum síðan tekið nokkur góð sessjon síðan og fengið okkur reglulega í glas...

Þar á meðal á gamlárskvöld.... enn Vildi kíkti á strákinn, sem var að passa 18 frænda sinn frá Miami. Það var horft á þetta snilldar skaup og svo tók sprengjuglaði strákurinn við sér og sprengdi upp 40 þús kallinn sinn.... enn við feðgar skutum upp fyrir vel yfir 100 kallinn þetta árið sem er bara svona meðal afrakstur hjá familíunni...  svo var hellt meir í sig og kíkt í partý hjá henni Elfu okkar sem endaði í stigaganginum hjá henni þar sem hún beilaði á því þegar við vorum að mæta í placið svo að þá var bara að rölta á Broadway þar sem var dansað af sér anusinn við fagran undirleik hljómbandsins Sálin Hans Jóns Míns.. Þar hitti mar alla á Íslandi fyrir utan Mattison sem tók púlsinn á miðbænum og partýum og Johnny sem fór snemma að sofa....

 

Svo tók bara við venjuleg vinnuvika hjá stráknum sem var alltof lengi að líða....

 

Svo kom aftur helgi.... Strákurinn sem ætlaði að vera voðalega góður og vera heima svona eitt laugardagskvöld til tilbreytingar......... um 9 leitið fóru við frændurnir Bixter og Tómas Miami strákur út á ónefnt bílastæði með okkar heimatilbúnu sprengju  sem samanstendur af 2 kílóum af kornax hveiti og heimamixaðri hvellettu og lituðum bílastæðið hvítt að lit.... og hreinsuðum það síðan með 3 kílóa vatnsmelónu og hvellettu....og enduðum svo sprengjugleðina á því að dúndra upp 2 veglegum tívolíbombum  enn minnstu munaði að Tómas þyrfti að fara aftur til Miami með eitt stk rakettuprik í æðri endanum....hehe þar sem önnur fór aðeins af leið...

Svo var farið í partý.... byrjuðum í Húsasmiðjupartý þar sem flestir kvennkostirnir voru í yfirvigt og aðal umræðuefnið var hversu mikið undirzinkaðar galvenseraðar sjálfborandi tréskrúfur væru búnar að hækka gríðarlega í verði..... svo var farið í bæinn...

Kíktum við fyrst á Óliver með 18 ára frændann í eftirdragi og voru þar sötraðir úrvals Mohitoar, og svo var farið á Sólon og djammið klárað þar.... þetta var sennilega eitt skemmtilegasta djamm sem ég hef farið á og var allveg ótrúlega mikið af fólki á djamminu.. það sem samt toppaði þetta var að 18 ára frændi minn stóð ekki í lappirnar að kvöldi loknu... var hann svo þunnur daginn eftir að þegar ég skutlaði honum uppí flugstöð þá mundi hann ekki einu sinni hvort hann væri að fljúga til New York eða Boston.... enn já þetta var svona létt yfirlit af síðustu vikum.. enn næsta krot verðu nú betra...

Later

Stebbi Agnar...

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 23:57:21 / ismellingar

Ahranesið góða ....hehehe

SÆLARRRR... nú er strákurinn búinn að vera að lesa allt of mikið undanfarna daga, og fékk hann loksins frí á föstudaginn..... og þá var ekkert annað í umræðunni enn að skella sér í vinnuna... enda á hann erfitt með að sitja bara heima og gera ekki neitt... Strákurinn var svo sendur á Akranes A.K.A. Mekka fótboltans á eftir Keflavík og öllum hinum liðunum... að setja upp eitt stk Subway stað... strákurinn lagði af stað galvaskur ásamt cowörkerunum kl 7 á föstudagsmorgunn... Var búin að frétta það að úrval kvenfólks á staðnum væri sko engin saga til næsta bæjar... svo að hann varð að ath þetta nánar....

Allir tímar hér eftir eru á staðartíma...

 



kl 9 komutími

Kl 10 smá kaffisopi

Kl 12 fengið sér hádegismat á Galileó someshit... Bæ the wey... bestu pizzur sem ég hef smakkað hér á landi....og þótt víða væri leitað...

Kl 16 smá kaffisopi Kl 20 lagt af stað heim..

 



Ok á þessum 11 tímum fórum við í 4 búðir,1 matsölustað, Essó og ÓB, 1 Átvr, Byko og Húsasmiðjuna... ok þetta eru 10 staðir... og málið var sannað.... það er bara ekki fallegt kvenfólk á Akranesi... só sorry... reyndi mitt besta til að leita og bauðst alltaf til að skreppa á hina og þessa staði í von um að sjá allavega glefs af sætri stelpu... enn neibb.... dagurinn var nánast ónýtur, þangað til að við renndum á Essó á leiðinni heim, strákarnir stukku inn til að fá sér eitthvað til að halda kverkunum blautum á heimleiðinni... og gekk hann beint að kælinum og náði sér í eitt stk Topp, labbaði í átt að kassanum og Viti menn þarna var hún, fallega stelpan á Akranesi á bakvið búðarborðið, strákurinn gat nátla ekki á sér setið og varð að spyrja...

 



Stebbi “fyrirgefðu enn ertu nokkuð frá Akranesi”

Sæta stelpan á Akranesi” nei veistu, mamma er nýflutt hingað og ég er hjá henni stundum um helgar og reyni þá að vinna eins og ég get”

Stebbi “ ok, semsagt ekki local”

Sæta stelpan á Akraesi “ neibb bý í Reykjavík hjá pabba”

Stebbi “ hlaut að vera...”

Sæta stelpan á Akranesi “ fyrirgefðu “

Stebbi “ æji ekki neitt var bara að spugulera”

Sæta stelpan á Akranesi “ okilí, var það fleira”

Stebbi “ neibb”

 



Ok þar hafið þið það, eina sæta stelpan á Akranesi var aðflutt og býr í bænum.... Enn já svo kom laugardagsmorgunn og aftur mættum við á Akranes... þegar á Subway var komið var komin röð af heimskum íslendingum fyrir utan Bt sem var að opna... allir í svefnpokum og tjöldum... heimska fólk.... svo um 11 leitið voru um 50 manns komnir í röðina þ.e. allir bæjarbúar nema þessir 2 sem fóru til Reykjavíkur fyrr um morguninn... svo hljóp fólkið inn um 11 og beið í klukkutímaröð til að fá dvd myndina á 999 í staðinn fyrir 1200 kall... fólk alltaf að græða sko... annars er þetta hið fínasta fólk, tildæmis er hægt að fá Dr. Pepper á aðeins kr.59 í Kasko... sem er bara helvíti gott miðað við að þetta rennur ekki út fyrr enn um áramótin nuna eftir 3 vikur... Svo lögðum við á stað heim um 6 leitið og urðum nánast veðurheftir á leiðinni.. vegna veðurs...hehe...

Enn já svo er það bara bókarlestur það sem eftir er að þessari blessuðu helgi.. og svo verður það Ísmellinga fyllerí um næstu helgi sem mar getur ekki beðið eftir.... og verður vonandi sérstakur leynigestur á staðnum enn það er Johnny, enn von er á að maðurinn fái leyfi til að mæta milli 8-9 ef hann hegðar sér vel... ehehe... No hard feelings Johnny minn...

Later Stebbi A...

 

 




» 8 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 22:58:46 / ismellingar

Hvar er Jóninn minn , hvar er Jóninn minn......

Ok, það eru komnir , hvað einhverjir 15 dagar síðan ég krotaði hér síðast, uhhh 28 dagar síðan Jón krotaði og 34 dagar síðan Mattison krotaði.... enn hann hefur reyndar löglega afsökun... enn hann er örfhentur. Veit ekki hvað málið með hann Jón minn, enn hann hvarf fyrir um 3 vikum síðan, og er ég einmitt í viðræðum við mjólkursamsöluna um að fá að smella mynd af kjappanum á mjólkurfernur, í von um að hafa uppi á honum sem fyrst þar sem hann með dvd mynd( eða beint í æð mynddiskur, þar sem íslenska þarf víst allt núna vegna menntamálaráðherrans samt kona... menntamálaráðfrúarinnar  eða bara  kellingin.. virkar líka  ) og skítamóralsdisk sem litli bróðir minn á, og er honum farið að lengja eftir honum þar sem hann kemur til með að gegna veigamiklu hlutverki í hinni árlegu áramótabrennu fjölskyldunnar, þar sem við brennum þá hluti sem betur  hefðu mátt fara á árinu... enn undanfarin ár höfum við brennt, bumbubanan, fótanuddtæki, ónotað líkamsræktarkort, spliff donk og gengja, tubbevere dollur og box, símaskrá og svo margt margt fleira. Enn já aftur að Jóni ... ef þið sjáið hann ...haldið þá í hann svo hann týnist ekki aftur...

 

 



Enn já , strákurinn er búinn að gera svo margt af sér síðan síðast... verð bara stuttorður í þetta sinn, svona 4-5 bls...... já hann Fór og fékk sér bjór á fimmtudagskvöldi ásamt Jóni , kom heim, svaf í 4 tíma vaknaði kl 6, hringdi í Jón, Jón kom og náði í mig , skutlaði mér í fyrirpartý í Garðabænum, þakkaði Jóni fyrir farið, Jón fór... Strákurinn fór í partýið, drakk 2 bjóra svo var farið niður i skóla, borðað með kennurunum, klætt síg í Mörgæsabúningana ( sem Bæ the wei, er til sölu á aðeins 7000 kr með vsk og lyktinni af stráknum eftir 10 tíma notkun, og þar af 3 tímar í göngu..... þetta er svona mild Armani Night lykt ... með svona dass af kanil og sítrónu...) svo var gert sig af fífli fyrir framan skólann... og svo inn í honum líka  og þá fyrir framan fólkið..  stokkið svo uppí rútu.. stoppað í ríkinu, farið í keilu í Öskjuhlíðinni og svo gengið niður á Laugarveg enduðum svo á Hressó, og þaðan var farið heim.... í 3 tíma... svo var það dinner með kennurunum ... og er það eitthvað sem ég mæli eindregið með og sérstaklega ef áfengi er við hönd og ef menn eru með myndavélar..... því fólk á það til að missa sig stundum...  svo var það bærinn og farið  áleiðis heim kl 6 ..... PISSFULLUR, vaknað kl 10, ennþá PISSFULLUR farið útá flugvöll hoppað uppí næstu vél til Köben og djammað þar fram eftir ... farið í rúmmið kl 5 , tekið svo vél heim kl 8 um kvöldið . komið heim um miðnætti , farið að sofa og svo kom skólinn.....

 

 



 (  Jón er nefndur í  sögunni, enn ég skrifaði nafnið Jón eingöngu til að fara í taugarnar á Johnny eins oft eins og það komst fyrir) 

Jæja... er hættur að krota í bili.... og ætla að hleypa næsta krotara að......

 

 



Later

Stebbi A


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 02:05:39 / ismellingar

“ Þar sem fólk sem elskar að ríða, kemur saman...”

Ok, shitt... djöfull er langt síðan mar krotaði hér síðast... enn það er svona að vera á fullu í þessum blessaða skóla að læra yfir sig svo maður getur útskrifast um jólin..

Enn já .. ég er búinn að sofa i 6 tíma á undanförnum 3 dögum vegna anna, búinn að krota heilar 11 ritgerðir síðan á sunnudaginn og taka 7 próf... nu er ég kominn í 2 daga frí frá prófum enn svo byrjar allt saman aftur á mánudaginn...

Enn nú er kjappinn kominn með vax í hárið og ætlar að fara að rifja upp síðustu helgi....

SKO .... við Johnny byrjuðum föstudagskvöldið á fyllerý hjá einum af okkar uppáhalds heildsala.... þar voru komnir saman 300 kallar í rafmagnsgeiranum sem eru eitthvað í þessu fagi... þarna var drukkið og étið Nings langt fram eftir kvöldi .. og var meðal annars drengurinn laminn og svona.....svo þegar maður stóð varla í lappirnar lengur þá var bjallað í skötuhjúin Gunnar og Óskar og leið þá okkar leið niður í bæ.... þar sem ég var eini karlmaðurinn í hópnum þá hélt ég nátla áfram að drekka þangað til að farið var heim um 5 leitið...hehe enn á leiðinni meðal annars stoppuðum við í ónefndri 10/11 verslun hér í hafnarfirðinum og þar reyndi 45 ára einhleyp 2 barna móðir við mig því ég var að fá mér burn... en það er allt önnur saga....

Morgunninn eftir var svo farið að kíkja í bækur.... ekki enntist ég lengi í því fagi svo að strákurinn tók uppá því að fara að mála herbergið sitt svona át off nóvere... svo strákurinn renndi í bykó og eyddi svona 2 tímum í a diskótera litaval mitt... heheh djöfull getur maður orðið hneigður af sama kyni við svona asnaleg innkaup.... svo var farið heim að mála... ekki var strákurinn að nenna þessu svo að bjallað var í littla Pólverjann minn hann Johnny... og var hann fenginn til að mála rest, sparsla og pússa.... hehe.. ég lánaði honum dvd mynd í staðinn.... svo auðvelt að semja um laun við þetta fólk....hehe

Johnny Pólverji...

Svo var lært fram eftir kvöldi, tekið sig til, drullað yfir Johnny fyrir að beila á djamminu, ( sagðist vera þreyttur eftir málingameðferðina mína)..... og svo farið til Valda Kalda..... síðan fórum við piltarnir á Uppskeruhátíð hestamanna.. eða eins og ég kýs að kalla það..... “ Þar sem fólk sem elskar að ríða, kemur saman...” þar var dansað af sér rassgatið menn mönnum á borð við Rúnnka sígraða og fleirrum snillingum enn hljómbandið "Í svörtum fötum" léku fyrir dansi... 

Ein svona fyrir Jonnny:lol: og hinar stelpurnar þarna úti...hehe8|

 

 

 

Aftur var reynt við mig af 28 ára konu sem sagði mér að ég væri sá allra flottasti þarna inni..... síðan fór hún að sýna mér hvernig brakaði í henni allri og slit á maganum eftir barnsburð..... heheh strákurinn var ekki lengi á bak... ííííiíííííííííiíhhhaaaaaaaa....... neibb bara glens.... OK allar þið gröðu einstæðu mæður á 30 tugs aldri og eldri....  það heillar mig ekki að sína hvað þú getur beyglað mikið uppá núliðinn vegna síendur tekinna brota eftir að hafa dottið af baki.... eða segja hey sæti það er miklu skemmtilegra að drekka burn með einhverju öðrum... Svo hættið....  Valdi var næstum laminn af fullum hestamanni sem var að þjófkennna hann... hehe endaði með að gefa okkur í glas og 4000 kall... assgoti gott.

Valdi, Rúnnki og stúlka...

Svo var farið niður í bæ með ýmsu fólki og tekið taxa áleiðis heim um morgunninn....

Svo er það næsta helgi... detta í það með ömmu minni í tilefni af 70 tugs afmæli hennar og dansa langt fram eftir kvöldi við undirleik Lands og sona... heheh verður allveg geggjað..... jæja.. farinn að halda áfram að lesa undir próf sem er eftir 7 tíma og svo er það dimmiteringinn eftir viku... önnur dimmeteringin á ævi minni og ég er rétt skriðinn í tvítugt.... jæja

Later

Stebbi Agnar

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 23:15:03 / Johnny

...amms 03/11-05/11...

...amms helgin var alveg hreint ágæt...föstudagskvöldið var reyndar vinna langt fram á kvöld...það kvöld afrekaði ég meðal annars að:

*Leggja í eitt stykki hús rafmagn

*Gera við eitt stykki körfuboltagrind

*og sonna næstum því að gera við dyrasíma en náði ekki alveg að fá hann til að virka og er heavy ósáttur við það...

 

 



...en laugardagurinn var mun betri var reyndar að vinna til 19.00 en eftir það var smellt sér í einn heavy sveittan ljósatíma á sólbaðstofuna smart bra snilldar stofa...(mæli með henni ef þú vilt verða hel tannaður/tönnuð...)...eftir það var haldið heim að dressa sig upp fyrir kveldið....svo kom hann valdi scooter ásmt honum stebba pilot að pikka strákinn upp...sem var þá búin með einn og á góðri leið með annan carlsberg...þá var haldið af stað til valda scooter til að gera sig alveg mökkölvaðan fyrir MR partýið hjá henni Hildi flassara...

...þegar þangað var komið var svaka partý í gangi og eftir sonna 2 tíma stopp þá var pantaður taxi til að redda sér downtown...veit ekki alveg hvað var að fljúga í gegnum hausin á okkur þegar við ákváðum að fara niðrí bæ í þetta líka belaða veður...shit...en þessi bæjarferð er ekki frásögurfærandi...nema hvað að strákarnir sökum kulda ákváðu að byrja að hlaupa uppá sólon frá Menntaskólanum í Rvk. En þá viti menn féll hann stebbi pilot alveg kylliflatur í jörðina með engu smá afli...strákurinn stóð nú strax upp enda ekki töff að liggja á miðri umferðagötu...neimm....en aumingja strákurinn kom sárþjáður og hélt um hendina á sér og mér og valda stóð nú ekki á sama því þetta var engin smá sársauki sem strákurinn var að upplifa þarna...og var Johnny co-pilot búin að stimpla 1 1 2 inní síman sinn og ætlaði að fara að fá sjúkrabíl fyri Pilotinn...því það er ódýrar að fara í sjúkrabíl upp á slysó í staðinn fyrir taxa spáið í því...en

 

 



Pilotinn tók það nú ekki í mál að sleppa djammi og fara upp á slysó...þannig Pilotinn djammaði bra með hægri hendina úr axlarlið...sem ég held nú að sé ekki vinsælt sko...en strákurinn harkaði þetta af sér og fóru strákarnir á nasa hverfis og sólon og var þetta alveg aldeilis ágætis bæjarferð þótt kuldinn hafi sett strik í reikningin...

 

 



 

 



Later Johnny Fearplay...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 01:04:16 / ismellingar

Ég hata!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ok ætla að byrja á því að MINNA Á SKOÐANAKÖNNUNINA OKKAR SÍ VINSÆLU8)8)8):!::!:

Enn ég ákvað að krota nokkra hluti sem fara í pirrurnar á mér þessa dagana...

Gamlar konur og kallar í umferðinni

Að þetta fólk skuli ekki vera sett í akstursmat um 60tugsaldur.. og svo á 5 ára fresti eftir það...

Gamlar konur á kassa...

T.d. að fara í apótek og kaupa smokka eða eitthvað álíka dæmi sem þótti voðalega neyðarlegt þegar maður var ungur...þær líta alltaf eins og maður sé eitthvað afbrigðilegur þó að mar vilji aðeins skemmta sér and keep it save...

Gamlar konur á kassa í ríkinu...

 þær vita ekki um neitt skemmtilegra enn að spyrja stráka um skilríki þegar það kemur að því að borga búsið... þótt maður hafi farið þangað í 3 ár og þær þekkja mömmu manns og liggur við komu í 20tugs afmælið hjá manni ..þá samt spyrja þær um skilríki til að sýna hver ræður..

Hondu töffarar...

Sko þetta “hondu” orð þá er ég ekki bara að meina hondu eigendur, heldur bara almennt þessir ungu strákar sem smella breiðari stút á pústið hjá sér og halda að þeir séu komnir á geimflaug .. þessir helvítis asnar... margir mjög fínir enn alltof margir og playja sig aðeins of mikið.... reyna að spyrna við alla á ljósum og skiptir það engu hvort það er 70tug kona sem er hölt og með lepp fyrir báðum augunum eða aðrir Hondu töffarar.

Löggur...

Sko það er alveg frábært að það skuli vera svona góðar löggur á þessum blessaða klaka.. enn hvað þessir menn hækka um marga sentimetra og breikka á við fíl þegar þeir smella mase brúsunum og kylfunum utan um kleinuhringja rassgatið á sér..... díses hvað þeir fara alltof margir útí öfgar með því .... samt ekki allir.. margir fínir og bara að vinna vinnuna sína.

Sumarlöggur...

 

Þetta er afbrigði af löggum sem ætti að banna..... þegar þeir eru útskrifaðir þá er voðinn vís í ca 3 mánuði.... Þetta eru t.d. mennirnir sem handtóku og sektuðu frænda minn fyrir að Jaywalka yfir Hverfisgötuna einn laugardagsmorguninn... 5000 kall takk fyrir....

Þetta eru lika þeir menn sem eru hvað oftast með bögg gagnhvart vandræðaliðinu niðri í bæ um helgar .. þar sem þeim skortir alla reynslu...

Ríkið...

Sko... nú vinn ég mikið í Keflavík.... og að það skuli vera aðeins eitt ríki þar á bæ er náttúrulega bara fáránlegt... svo er það líka á stærði við grænmetiskælinn í Bónus....

Svo lokar það líka kl 2 á laugardögum sem er náttúrulega fáránlegt... og vorkenni ég íbúunum þar massift fyrir vikið.... svo er líka oft lítið til og bara þessar helstu tegundir til ... enginn fjölbreytni... og að u getir ekki keypt bjór útí búð...KOMMON!!!

Skatta...

Að þetta blessaða ríki skuli hirða tæp 40 prósent af því sem maður vinnur sér hörðum höndum inn... ég meina fólk sem er í skólum.... hvernig á það að lifa þegar það vinnur kannski bara 4 daga í mánuði.. og fær kannski 70 þús kall.... svo kemur ríkið og hirðir af því .. og þá fer peningurinn niður í ca 38 þús.... svo koma lífeyrissjóðirnir og taka sitt, svo stéttar félögin og starfsmannasjóðirnir og svo fer eitthvað í orlofið..... þannig að greiji skólafólkið stendur uppi með kannski 20 þús á mánuði og á jafnvel eftir að borga leigu, af lánum ,af bílnum og að lifa...

Verð á vatni í búðum...

Sko að borga 170 kall fyrir vatn í flösku útí sjoppu eða í skólasjoppunni er nátla bara bull.. Og hvað með það þótt það séu einhver bragðefni og kjaftæði í þeim..... u ert að borga ca.70-80% fyrir umbúðirnar af vörunni.... það er bara staðreynd.... og svo leggja búðirnar sitt ofan á... veit t.d. að 33cl frá einum heildsalanum til sjoppu er 42 kr.... svo borgar þú kannski 100 kall fyrir hana eða meira útí sjoppu.... ALLVEG FÁRÁNLEGT.

Dagskránna á Sýn...

Nú borga ég af Sýn á mínu heimilli þar sem ég er mikill aðdáandi íþrótta og þá sérstaklega fótbolta... Ég er að borga 2200 kr á mánuði fyrir áskriftina.... OK það væri alltí lagi ef ég væri að fá dagskránna til mín í allavega lámark 12 tíma á dag... enn neibb dagskráin hjá þeim byrjar oftast virka daga kl 18 og stendur til 24.... heilir 6 tímar á dag á virkum dögum... reyndar byrjar dagskráin fyrr um helgar ..en oftast er 60 % af dagskránni endursýnt í 3 eða 4 skipti.... svo þarf ég að borga 500 kall á mánuði aukalega til að fá auka afruglara sem er náttla bara bull... Enn Stöð 2 er að græða svo bigtime á okkur íslendingum með því að láta okkur kaupa eða fá þessa afruglara... enn til gamans má geta að þessir fallegu silfurlituðu afruglarar urðu úreldir útí hinum norðurlöndunum fyrir ca 3 árum... og hætt var að nota þá vegna tíðra bilana og vandræða... Stöð 2 fékk þá á góðu verði...og svo það að sína suma leiki á sýn extra1 og 2. og maður fær ekki aðgang að þeim stöðvum nema að borga aukalega eða skuldbinda sig til 12 mánaðar áskriftar af Sýn.

Verð á bjór á skemmtistöðum...

Að borga 800 kall fyrir bjór eins og t.d. á Broadway er náttla bara rugl.... bjórinn á bara að vera á svona 500 kall á stöðunum.. það er ekki eins og staðirnir séu að tapa á bjórsölunni þótt þeir lækki verðið.......

Verð í bíó...

Bara rugl.... 900 kall... þú ferð í bíó með t.d. fallegri dömu og ákveður að bjóða í pakkann.... 2x900 = 1800 kall svo er það popp og kók...1800+700 kall það gera 2500 kall ef báðir aðilarnir eru svangir...

Smá verðdæmi.. Strákur bíður Dömu í bíó..=2500 kall .. svo fá þau sér snarl t.d. á Friday’s matur fyrir 2 allavega 1800 kall.... svo er kíkt á djammið.. strákurinn heldur áfram að bjóða... keypti eitthvað af bjór fyrir þau fyrir kvöldið..1200 kall.... svo er það leigari niður í bæ....2000 kall og + ef u býrð langt frá bænum.. svo eru það Guðsveigar á barnum kannski 4 drykkir í heildina 2800 kall....  og svo leigari heim...þetta gera ca.=11800 kall kvöldið.... eins gott að sá sem leggur útí þetta fái eitthvað fyrir inn snúð...:lol:

 

Goth-ara...

 Ég er bara skíthræddur við þau...í þessum Matrix jökkum og allar þessar keðjur.. það átti svona dúddi að þvo á mér hárið um daginn í klippingu..... enn sem betur var strákurinn fljótur að huxa og brá sér á klósettið... og á meðan var Gotharinn sendur í annað djobb( að sópa)... ábyggilegasta fínasta fólk ..enn creepí

Öryggisverði í flugstöðvum...

Hvað þetta blessaða fólk elskar það að bögga aðra..Shittt.. nú er ég búinn að vinna uppí flugstöð í nánast 2 ár... og að fara í gegnum vopnaleitina mörgum sinnum á dag er náttla bara rugl.....þetta tekur svona allaveg 10 min í hvert skipti að tína af sér verkfærin, beltið, skónna, símana, pennana,... og svo á eftir að fara í gegnum allar verkfæratöskurnar... enn það er gert í handleit... og þau eru ekki alveg þau sneggstu í geiranum.. enn samt fínasta fólk... gerir sitt besta í að halda Bin Ladenunum frá flugvélunum....

Bifreiðaverkstæði...

Vá hvað þeir taka marga í rassgatið árlega.... með því að búa til hin ýmsustu verð á hina og þessa hluti.. sem hin meðalmaður hefur ekkert nokkurt vit á...

Fólk sem kann ekki að labba á skemmtistöðum...

Það rekst utan í mann annað hvort sem að maður er með fullt glas eða þau ..og alltaf endar þetta yfir manni.... vantar smá tillitsemi stundum.. enn fokkit mar er að djamma...

Og það síðasta...

 

Hliðin uppi á flugvelli þegar maður er að ná í ættingja...

Jesús hvað það myndast alltaf geðveikar raðir þarna þegar fólk er að ná í einhverja... og svo þarf fólk að borga 100 kall eða meira til að komast útaf stæðinu 20 min síðar...

Later Stebbi Agnar…


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 21:47:49 / ismellingar

OK.... Þetta er bara ósanngjarnt

OK .. ég var aðeins að wappa um veraldarvefinn í skólanum í dag... og fór inn á einhverja helvítis FEMINISTAsíðu:frown::frown:.. og viti menn þar er linkur inn á "31 ástæða afhverju það er betra að vera kona"... Ég meina DÓMARI má þetta... að hafa bara einhver lista sem er að drulla yfir kalla og segja afhverju þær eru betri enn við ÆÐRA kynið....:$

Enn strákurinn ákvað að birta þennan blessaða lista í von um viðbrögð frá karlpeningnum.... 8|

31 ástæða fyrir því hvers vegna það er skárra að vera kvenmaður!

--------------------------------------------------------------------------------

1. Þú getur gert fleira en eitt í einu

2. Ef þú ert með bólur geturðu málað yfir þær

3. Þú getur afsakað allt með því að það sé sá tími mánaðarins

4. Þú getur farið í lýtaaðgerð og stært þig af því

5. Maki þinn er alltaf til í að sofa hjá þér

6. Þú gengur fyrir í þau störf sem þú og jafnhæfur karlmaður sækja um

7. Þér er frekar fyrirgefið ef þú lætur einhverja vitleysu út út þér

8. Þú ert falleg nakin

9. Ef þú prumpar í bíó grunar þig enginn

10. Þú borgar lægri skatta en karlar (ert að vísu með lægri laun)

11. Þú ferð fyrst í björgunarbátana

12. Þú mátt keyra eins og hálfviti

13. Það finnst engum skrítið þótt þú hangir langtímum saman inni á klósetti

14. Þú lifir lengur

15. Þú getur feikað fullnægingu

16. Þú manst hvenær allir eiga afmæli

17. Ef þér gengur illa í vinnunni geturu hætt og farið heim og eignast börn

18. Þú getur gengið í bæði kjól og buxum

19. Ef þú missir hárið og þarft hárkollu fattar það enginn

20. Þú getur farið staurblönk á stefnumót

21. Þegar þú ert dónaleg finnst karlinum það kynæsandi

22. Þér er hjálpað ef það springur á bílnum

23. Þú getur tekið vinkonu þína með á klósettið

24. Þú færð börnin ef þú skilur

25. Þú getur saumað fötin á þig án þess að vera talin furðufugl

26. Þú getur eignast barn

27. Það eru opnaðar fyrir þér dyr

28. Þú pissar ekki út fyrir

29. Þú þolir sársauka betur

30. Fólk klórar sér ekki í kynfærunum fyrir framan þig

31. Þú þarft aldrei að kaupa smokka

Later

Stebbi Agnar


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 23:29:24 / ismellingar

R.I.P.

R.I.P.

Johnny Vigfússon... 23/09’86-16/10’06

 

Hann var frábær ungur drengur úr Garðabænum... hann skoraði eitt sinn mark í fótboltaleik... og það var Sjálfsmark. ... hann lagði skónna á hilluna eftir það.... nú í dag er drengurinn búinn að svipta sér karlmennskutittlinum, fyrst með því að hætta við þátttöku í Herra Ísland, síðan að fara á Devil wears Prada í bíó og síðan að flytja til Hnakkavill….A.K.A. Selfoss… megi minning hans lifa hér á höfuðborgarsvæðinu, enn þetta var frábær drengur í alla staði…

 

Kær kveðja og virðingarfyllst

 

Stefán Agnar Hjörleifsson.



 



 



 


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 20:53:27 / ismellingar

Ok ég var aðeins að spugulera...

Málið er að ég og mín ofur dekraða litla systir erum með okkar eigin baðherbergi í okkar álmu í húsinu.... Sko... ég fer þó nokkuð oft í sturtu fljótlega á eftir henni á morgnanna... Enn henni virðist alltaf takast að ná að setja nýtt og nýtt Íslandsmet í LENGI þegar hún fer í sturtu.... Síðan fór ég að vafra um veraldarvefinn til að reyna að fá svör við þessarri dulgátu þ.e. HVAÐ Í ANDSKOTANUM FER ALLUR ÞESSI HELVÍTIS TÍMI Í:........... enn tel mig hafa fundið svona nokkurn veginn skýringuna á þessu......

 

HVERNIG Á AÐ FARA Í STURTU EINS OG KONA

-------------------------------------------------------------------------

Farðu úr fötunum og raðaðu þeim í flokkaðar "óhreina-taus-körfur"  Ein fyrir ljósan þvott, ein fyrir dökkan, ein fyrir hvítan, og ein fyrir sérstaklega viðkvæm efni.

Gakktu í átt að baðherberginu í síðum slopp.  Ef að húsbóndinn sér til þín á leiðinni, mundu þá að hylja allt nakið hold og flýta þér inná baðherbergið.

Horfðu á sjálfan þig í speglinum, ýttu maganum fram og kvartaðu í smástund við sjálfa þig yfir því hvað þú ert að verða feit.  Stígðu inn í sturtuna.

Athugaðu hvort að eftirfarandi sé ekki örugglega við hendina:

Andlits-þvottapokinn, handarkrika-þvottapokinn, fyrir-neðan-mitti-þvottapokinn, grófi nudd-þvottapokinn og siðast en  ekki síst .. appelsínu-húðar-nudd-steinninn.

Þvoðu hárið einu sinni með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.

Þvoðu hárið aftur með Agúrku og Ginseng sjampóinu .. þessu sem inniheldur 83 nauðsynleg vítamín fyrir hárið.

Notaðu Agúrgku/Ginseng næringuna .. þessari með viðbættu Burkna-olíunni  og láttu standa í hárinu í 15 mínútur.

Þvoðu þér í framan með Aprikósu-skröbbinu í tíu mínútur .. eða sirka þangað til þig fer að svíða verulega.

 

Þvoðu restina af líkamanum með Ginger/Jaffa-Cake líkams-sápunni. Skolaðu næringuna úr hárinu í sirka 15 mínútur .. svo að örugglega öll afgangs næring hreinsist í burtu.

Ef að húsbóndinn sturtar niður, sem leiðir til þess að vatnið hjá þér hitnar í smástund, skaltu öskra brjálæðislega og kalla hann öllum illum nöfnum.

Skúfaðu fyrir sturtuna.  Þurrkaðu upp alla bleytu í sturtunni.  Notaðu Ajax sturtu sprey til að ná upp háglans á flísarnar.  Ekki gleyma að athuga gólfið fyrir framan sturtuna og þurrka upp hvern einasta dropa.

Farðu úr sturtunni.  Þurrkaðu þig með handklæði sem er á stærð við lítið Afríku ríki.

 

Pakkaðu hárinu inn í annað, extra rakadrægt, handklæði. Skoðaðu allan  líkamann í leit að minnsta blett eða hári.  Notaðu neglur eða flísatöng til að gera út af við það sem þú finnur.

Gakktu í átt að svefnherberginu í síðum slopp með handklæðið ennþá á höfðinu.  Myndu að hylja allt nakið hold .. ef að húsbóndinn er nálægt..  og flýttu þér í átt að svefnherberginu.  Ekki eyða undir hálftíma í að klæða þig.

 

-------------------------------------------------------------------------

 AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR

-------------------------------------------------------------------------

Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu, og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið.  Gakktu nakinn í átt að baðherberginu.  Ef að konan sér þig á leiðinni, hristu þá "vininn" í áttina að henni og segðu "Vúúííí".

Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt inn andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk" (sem þú ert ekki með.)

 

Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum", gríptu um hann og segðu "Jú vonna pís of ðis beibí".

 

Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka ? ekki nota hann ef þú rekst á hann.

 

Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu. Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búði til móíkana-kamp með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí).

 

Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu).  Skolaðu þig og farðu úr sturtunni.  Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn.)

Þurrkaðu þér lauslega.  Horfðu á sjálfan þig í speglinum.  Taktu nokkrar  "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).

Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið.  Ef að þú rekst á konuna, dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gosann", taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Sssjabúmm".

Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu.  Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu í nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og þú notaðir í gær.

Þetta er svo MIKLU auðveldara fyrir okkur strákana…. Og við skemmtum okkur ávallt konunglega..

 

Later

 

Stebbi Agnar..



 



 


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 20:40:01 / Johnny

...14/1072006...Ksí lokahóf og Borg óttans...

....amms langaði til að krota aðeins niður gærkvöldið og nóttina...sem sagt kvöldið 14/10/2006....amms þetta byrjaði allt með að ég kíkti aðeins á þá Heimi og Axel þar sem þeir voru staddir á verkstæði í hafnafirði...að lækka eitt stykki Imprezzu niðri drasl....og að sjálfsögðu þegar þessir fagmenn eru að verki þá er bjórinn ekki langt undan...

 

 



 

 



en eftir dágott stopp þar hélt kjappinn heim að skila bílnum og fara að snúa sér að því að fara að refsa nokkrum svell köldum carlsberg bjórum...og eftir það kom Pilotinn og pikkaði Co-Pilotinn upp á bikarsvörtum Ford Explorer....(við ferðumst ekkert á neinu drasli sko)...þaðan lá leiðin aftur í hafnafjörð til Pilotsins...þar dressaði hann sis upp og fór að drekka ásamt co-pilotinum...síðan eftir dágóðastund kom okkar driver sem var Flug og siglingadrengurinn hann Tryggvi...

 

 



 

 



...amms þaðan lá leiðin til Valda a.k.a scootersins...hehe...þar sem Binni Coke var einnig...þar var haldið áfram með drykkjuna og spjallað og fíflast...hehe...en svo var sonna pæling hvað ætti að fara að gera en eftir smá sonna umhugsunatíma og nokkur símtöl var ákveðið að fara á KSÍ Lokahófið á Broadway...þar fyrir utan hittum við tvær stjörnuskvísur...og var tekinn fótboltamynd fyrir tilefnið..

 

 



...en þar sem þetta ball stóð bra til þrjú...og kjapparnir engan vegin að nenna að fara heim eftir það áttu nóg eftir var haldið niðrá suðurlandsbraut að ná í taxa eftir smá bið og nokkra vel valda fótboltasöngva...(það var eimitt í þeim sem minnz missti röddina)..birtist eitt stykki taxi...og kjapparnir loks á leið niðrí bæ...

 

 



 

 



 

 



þegar þangað var komið var byrjað að strauja nokkur visa kort og nokkur debetkort í taxanum en neimm allt kom fyrir ekki...kerfið var eikkað belað þannig taxa-kjappinn nennti þessu ekki lengur...og gaf kjöppunum farið...og voru við mjög svo þakklátir honum...hehe...en eftir þetta var það sonna nok basic sem við gerðum af okkur fórum á sólon og hverfis og prikið...svo sonna þegar sólin átti að vera að koma upp...(var reyndar grenjandi rigning)...var haldið heim á leið í sveittum taxa...og sumir drápust í sínum rúmum aðrir ekki...hóst hóst...en Kjapps...takk fyrir frábært kvöld...

Seinna....Johnny a.k.a Four-Playerinn...


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 01:46:37 / ismellingar

Árið sem leið... þótt að andskoti nóg sé eftir...

Neibbs ... strákurinn er ekki dauður... bara búinn að vera á fullu í helvítis skólanum.... þetta er allveg að gera útaf við mig .... þessi blessaði heimalærdómur..... hvað er mar annars að spá í að hanga í skólanum og vera alltaf skítfátækur fyrir vikið.... enn fokkit ... þetta er að verða búið bara 1 og hálfur mánuður eftir... ég ákvað að rifja aðeins árið upp.

Djöfull verður þetta massifur annáll þetta árið hjá familýunni

Okkur tókst að fara 30 saman til útlanda... og ekkert nein massif vandamál fyrir utan að stúta einu stk. Vespu....

láta henda okkur 2. útaf skemmtistað...

 Teknir í fíkinefnaleit hjá spænsku löggunni ...

strippa fyrir framan familýunna sökum ölvunnar.

Og svona sitt lítið af hverju...

Ná sveinsprófinu mínu...( massift afrek)

Ná stúdentsprófinu mínu...(ætti allveg að meika það )

Kaupa mér nýja bíl...( fæ hann eftir mánuð)

Sofa hjá .... stelpum...

Skrá Johnny í Herra Ísland...( honum langaði innst inni að keppa)

Johnny varð 20...(besta 20 afmæli á árinu á eftir öllum hinum)

Við opnuðum bloggsíðu....(sem ég sór þess eið að gera aldrei)

Systir mín fékk bílpróf...( og ekki búin að keyra á enn)

Kaupa mér aðeins 20 dvd myndir (sem er met þar sem þær ná hundruðum)

Búinn að kaupa mér 3 nýja takkaskó ( og mun aldrei spila fótbolta aftur, eða svo segja læknarnir... enn hvað vita þeir svo sem....)

Brjóta á mér hnéskelina... ( í fótbolta)

Eignast hund .... og missa hund...:0( (blessuð sé minning hennar Tinnu okkar)

Við urðum bikarmeistarar í fótbolta.... þar sem Keflvíkingar sigruðu Kr-inga svo eftirminnilega 2-0...( snilldar dagur útí eitt)

Og fleira og fleira...

Síðasta helgin var snilld.... við piltarnir útskrifuðumst loksins.....

Og aðrir skemmtu sér meir enn hinir..þ.e. sumir voru í öðrum heimi sökum ölvunnar í byrjun kvöldsins..... nefni enginn nöfn .... enn fyrsti stafurinn er Johnny...

Enn svo virtist aðeins renna af mönnum síðar um kvöldið...

 Svo er bara vikan svona að mestum hluta til búin að fara í lærdóm...og hanga heima sökum lappa..sem hætta stundum að virka rétt...enn er allt að koma....

Við félagarnir fórum að sjá Borat í vikunni ..sem er án efa sú allra fyndnasta mynd sem ég hef séð..þó svo að sum atriðin hafi farið doltið fyrir hjartað á strákum á rauðum Golf......    Mæli eindregið með því að menn taki með sér kleenex pappír á myndina ...því þú munt gráta...

og já allveg rétt... við sáum líka World Trade Center... sem er mjög átakanleg mynd.. og voru sumar konurnar með masskarann niður á nafla í hálfleik á myndinni..... sem er bara fyndið .... en já hún er allveg rosaleg... þó svo að það gerist svo sem ekki mikið í sjálfri myndinni ... fyrir utan það að það krassa nátla 2 stk boing vélar á tvíburana.... enn annars bara svona lala á milli...

Og já, ef þið farið í Álfabakka, þá mæli ég eindregið með góðum Kraft galla  og 66° norður húfu ( æji svona blá með ógeðslegum neon gulum stöfum) á hvaða helvítis sýrutrippi var sá andskoti sem hannaði þetta.... þetta er án efa eitt það allra ljótasta sem maður sér menn vera með á hausnum... enn þú getur falið hana undir hettunni á Kraftgallanum ..... því það er svo fokking kalt þarna inni..... Ekki nóg með að þessir andskotar rukki mann fokking 900 kall fyrir að horfa á bíómynd ... heldur selja þeir líka ís í bíó...... og það með svona Hjúp.. sem aðeins þýðir eitt.... þú kaupir þér ís ... og ert t.d. í nýju hvítu skyrtunni þinni... smjattar svo á ísnum yfir myndinni  enn NEI... þar sem fæðingarhálfvitinn, þú ert að borða ís með dífu í myrkum sal í hvítu skyrtunni þinni... tekur náttla ekkert eftir því ef það hrinur eitthvað niður ... og ef þú heldur að eitthvað dettur niður .. geturðu ekkert séð það sökum myrkurs.... og ef þú gerist svo djarfur að Tendra símann þinn til að fá smá birtu ... þá standa einhverjir Vonabí Gillzneggerar upp og hóta að troða símtólinu uppí æðri endann á þér þar sem þú ert víst eitthvað að trufla þá.....

... svo kemur hlé..... og kjappinn sáttur á kanntinum og ákveður að t.d. skvetta úr skinnbrókunum eða að kíkja aðeins á meyjarnar í afgreiðslunni.... með þessa FÍNU súkkulaði klessu framan á miðjum maganum á þér og tekur náttla ekkert eftir neinu .. fyrr en einhver miskunnsamur smáborgari bendir þér á þetta .... og þú verður eins og hálfviti í framan.....

Heyrriði já smá svona vangaveltur hjá stráknum.....

 Enn já shitt hvað það var asnalegt að fara í kringluna í dag og komast að því að móðurmálið þennan daginn í kringlunni væri Enska... eða svona næstum því.... það voru háttí 500 kanar þarna allt hermenn og bara casjúal klæddir og svona 480 af þeim ekki af Aríum komnir( Aríar eru hvítt fólk Johnny minn).... sem betur fer var kjappinn með bligidí bling í eyranu og þurfti aðeins að toga buxurnar aðeins neðar og þá var þetta komið...

Þannig   féll hann strax inní hópinn... eina sem að vantaði reyndar til að fullkomna þetta var lítersbjór í bréfpoka....

Mér tókst einnig að fá Johnny til að horfa á Kill Bill .... enn drengurinn var að sjá hana í fyrsta skipti.... og gafst þó nokkuð oft upp á að horfa á hana..... enn ég sem er svo þrjóskur neyddi hann í meira...... ég reyndi hvað sem ég gat til að fá hann einnig til að horfa á Kill Bill 2 .. enn þá vissi ég ekki hvert hann ætlaði.. Honum fannst nebla mynd númer 1 leiðinleg.... þannig að ég er að byrja með nýtt átak sem nefnist “ Sláum ‘ann í hnakkann” og þeir sem eu á móti því sem Johnny sagði um myndina eru guðvelkomnir í að slá Drenginn aftan á hnakkann... og ausa yfir hann hrótyrðum .. ennn passiði samt að messa ekki Hair-due-inu á drengnum þar sem það er víst heilagt...hehe  Svo má ekki gleyma því að Ungfrú Íris Prinsessa kom og heilsaði uppá mig í vikunni.. og verður hún bara sífellt fallegri með hverjum deginum sem líður...

Later Stebbi Agnar.... 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 16:18:46 / Johnny

...útskrift og tryllt helgi...

...amms amms helgin 6/10 – 8/10 hún var alveg snarbrjáluð að öllu leiti...þetta byrjaði allt á föstudagskveldinu með 60 ammæli sem var reyndar ekki 60 ammæli heldur 3 eitur hressir strákar þeir Oddur Bogasson, Haukur Ingimarsson og Bjarki Þórarinsson...sem áttu allir 20 ammæli og ákváðu að slá því í eitt stórt 60 ammæli sniðugt hjá þeim enda eru þeir bra snillingar... þetta var eitt belað fyllerí frítt á barnum og sonna...

 

 



 

 



eftir það ákváðu kjapparnir að skella sér á eikkað lopapeysu djamm með lopapeysunördunum í Menntaskólanum í Reykjavík...hehe en þegar kjapparnir loksins mættu á svæðið var löggan búin að stoppa geimið...því þar voru einkur smábörn sem eru með útisvistartíma til 20:00 að drekka....þannig þó hófust miklar vangaveltur um það hvað ætti að gera af sér...en eftir mjög langan um hugsunartíma  þá enduðum við heima hjá henni Önnu Birnu...

 

 



 

 



...svo var það laugardagurinn a.k.a Útskriftardagurinn... vááááá hellaður dagur....þessi dagur vann sér það til frægðar að á þessum degi útskrifuðust 3 af þeim bestu rafvirkjum sem hafa útskrifast frá rafiðnaðarsambandinu...hehe...en amms eftir smá sonna ræðuhöld þá var komið að hinu mesta fylleríi... eftir smá sötr í rafiðnaðarsambandinu þá var haldið niðrí orkuheima en þar má segja að FYLLERÍIÐ hafi byrjað... en áfengið sem kjappinn setti í sig þetta kveld...er eftirfarandi:

 

 



*Bjór (allskonar bjór)

*Hvítvín

*Rauðvín

*Rósavín

*Smirnoff Ice

*Rauðan opal

*Blán opal

*Tópaz

*Gin í Pepsi

*Captein í Pepsi

*Martini í sprite

*Vodka í Burn

 

 



...en eftir ágætt stopp í orkuheimum þá var bjallað á oss driver sem var Hildur prinsessa þetta kveld...fyrsta stopp var stebbi pilot því hann vantaði nýja skó...en heima hjá stebba Pilot beið okkur mjög svo óvæntur glaðningur frá honum Hjöbba Raf og konu hans...(sem sagt hans mom og far)....þar beið sonna sitt hvor Man’s Bag með bílamyndum á ýkt flott en það sem var inni skipti meira máli þar beið okkar svell kaldur Carlsberg kassi...en eftir smá stopp hjá stebba pilot hélt ferðinni áfram næst var að ná helvítis fordarann hann Mattison ford...þar næst var haldið til valda kalda a.k.a Scooterinn...að drekka meir svo var einnig kíkt á Mannfred man þar var margt um manninn eftir það var rölt niðrí bæ og var gripið í söng á leiðinni til að drepa tíman hehe...

...amms síðan þarna niðrí bæ var þetta nok basic nema kvöldið eða morguninn endaði hjá mér inní Kópavogi með honum Binna Coke...í einhverju trylltu morgunpartýi með fólki sem við þekktum ekkert...þetta var bra snilld svo var bra “crassað” um 8:00 leitið og vaknað aftur hellaður um 11:00 leitið og tekinn taxi heim...var reyndar alveg ýkt lengi að finna adressuna af þessu shiti hehe...en þetta var snilldar helgi...

 

 



Kveð í bili Johnny Co-Pilot....


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 21:31:44 / ismellingar

Kjapparnir...

Nýtt útlit, nýjungar á krotinu okkar og ekki má gleyma hinni sí vinsælu SKOÐANAKÖNNUN.... 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 19:45:09 / Johnny

...Helgin 29 sept til 1. okt... Og auddað BIKARMEISTARAR...

...amms helgin var í einu orði sagt GEÐVEIK...Byrjaði á föstudagskveldi á eitt stykki bíóferð á eina hellaða mynd sem ber nafnið....Harch times...það er bra helluð mynd og mæli ég með að fólk flykkist til að líta hana augun....

 

 

...svo var það laugardagurinn eða BIKARLEIKJADAGURINN...þar sem KEFLAVÍK vs. KR....mættust og auddað fóru Pilotarnir á þennan magnaða leik það var allt gott við þennan dag gott veður byrjuðum að sötra bjór kl 13:00...það finnst mér vera afrek vegana þessa að kjappinn vaknaði hálftíma áður eða 12:30...en BIKARLEIKURINN var snilld KEFLVÍKINGAR mættu sonna 300 sinnum betur stemmdir til leiks...enda unnur KEFLVÍKINGAR þetta 2-0

 

 

....eftir sonna hálftíma fögnuð niðrá laugardalsvelli...þá fengum við Pilotarnir hann Æbba K...hehe...til að keyra bílin hans stebba heim til hans Stebba A. en að sjálfsögðu var komið fyrst við í mjólkurbúðinni í Kringlunni...og náð sér í smá mjólk sér til sötrunnar...

 

 

...þegar heim til stebba var komið var aðeins andanum dregið að sér og slapað af...svo eftir að kapparnir voru búnir að henda í seg einni mjög svo sveittri pizzu...ákváðu piltarnir að hætta að drekka og fara á fyllirí...hehe...

 

 

...svo þegar nokrar mjólkur voru búnar ákváðu strákarnir að hringja í fólk og syngja fyrir það KEFLAVÍKURSÖNGVA....þar kom fyrir:2-0 fyrir keflavík... og það heyrist ekki neitt það heyrist ekki neitt koma svo kr. það heyrist ekki neitt...Kefla kefla kefla ....vík vík vík ...og tóku sumir þessu vel og aðrir vissu ekki alveg hvernig þeir ættu að haga sér eftir þessa lífsreynslu en kjapparnir skemmttu sér konungslega við þetta...hehe

 

 

...svo að lokum kíktum við á hana Gauju prinssessu...og sötruðum þar í smá stund og horfðum á sjónvarpið...og fékk prinsessan að ráða fjarstýringu...en förum ekki nánar úti það hvað varð fyrir valinu...hóst hóst...hehe...en eftir það skelltu kjapparnir sér í bæinn...þar var djammað eins og engin væri morgundagurinn...

 

En sonna er þetta í Basicinu:

*Hætti að vera hræddur við írisi...

*Komst að því að Íris bítur ekki...(allavega ekki fast)...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kveð í bili Johnny a.k.a Fourplay-inn...


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012